Valmynd

Könnunin

Veðurstofa Íslands

Vegagerðin

Dægradvöl

Þar sem himininn frýs við jörð

Þar sem himininn frýs við jörð
Þar sem himininn frýs við jörð
Það veður kynning á þessari merkilegu ferð nokkurra félaga á heimskautaslóðir Norður Kanada í félagsheimilinu Miklagarði á morgun kl 20:00. Norðurslóðir búa yfir mikilli náttúrufegurð og tækifærum. Þær skipta sífellt meira máli fyrir framtíð okkar allra og verða æ meira áberandi í allri umræðu um náttúruvernd, nýtingu auðlinda og samgöngur....
Meira

Tveir fluttir á sjúkrahús.

Tveir voru fluttir með sjúkraflugi til Akureyrar í nótt eftir ammoníakleka í milljón. Leiðslur í frystiskáp gáfu sig og lak ammoníak út sem starfsmennirnir önduðu að sér. Þeim mun ekki hafa orðið alvarlega meint af og eru á leið heim af sjúkrahúsinu. Frysting er hafin að nýju eftir að búið var að lofta út og gera við það sem bilaði og er nú verið að frysta úr Ingunni en Faxi bíður eftir löndun.

Einn einn tveir dagurinn, 112: Ekki hika – hringdu til öryggis

112 - einn einn tveir dagurinn var haldinn hátíðlegur á Vopnafirði eins og víðar um landið í dag. Allir Viðbragðsaðilar á Vopnafirði komu saman upp í slökkvistöð og héldu saman upp á daginn og buðu upp á kaffihlaðborð en slysavarnarkonur sáu um kræsingarnar eins og þeim er einum lagið....
Meira

Blakgellur svífa

Þetta blaklið er búið að standa sig frábærlega
Þetta blaklið er búið að standa sig frábærlega
Eins og flestir kallmenn hér í þorpinu vita þá stunda konur hér á Vopnafirði blakíþróttina af miklum móð. Þær hafa staðið sig mjög vel á þeim blakmótum sem þær hafa tekið þátt í að undanförnu og gerðu góða ferð austur á firði um síðustu helgi en þar höfnuðu þær í 3 sæti á sterku blakmóti.
...
Meira

Lífið er Milljón.

Guðfinna og Steina að skrásetja og telja.
Guðfinna og Steina að skrásetja og telja.
« 1 af 3 »
Það var allt að komast á skrið þegar ég kom við í Milljón í kvöld og allt gekk að óskum eftir Jólastoppið. Þetta er ágætis loðna en einhver átuvottur sagði einhver en vel hæf í frystingu. Þær Guðfinna og Steina voru á fullu að taka prufur, Víðir vakti yfir flokkurunum en Helgi M klappaði pokavélunum eins og um stelpu að norðan væri um að ræða. Vertíðin er vonandi komin á fullt og allir verða uppteknir fram á vorið, í vinnu.
Fyrri síða
1
234567868788Næsta síða
Síða 1 af 88
Færslusafn frétta

RSS

22.02.2012 | Enski boltinn

Ferguson: Met Giggs verður ekki bætt

Enski
Enski
Sir Alex Ferguson knattspyrnustjóri Manchester United segir að met Ryan Giggs verði ekki bætt en velska goðsögnin leikur sinn 900....
Fleiri blogg
Augnablik... Loading...
Vefumsjón