Myndir frá kaffihúsamessu á konudaginn
Sunndaginn 19. febrúar var kaffihúsamessa á konudaginn í Kaupvangskaffi. Fjölmenni var við messuna og nutu kaffiveitinga á Ágústu og góðrar stundar, en við messuna söng Karlakór Vopnafjarðar undir stjórn Stephen Yates. Sunnudagaskóli var á sama tíma í Múlastofu og var mikið fjör og gaman og heyrðist stundum vel niður. Við lok messunnar gaf Landsbankinn á [...]
Öskudagur
Afgreiðslufólk KauptúnsStefanía H Aradóttir Elma MagnúsdóttirJakobína Sveinsdóttir Þóra PétursdóttirÖskudagur er miðvikudagur í 7. viku fyrir páska (4febrúar til 10 mars) þá hefst langafasta og stendur alt til páskadags. Dagsheitið er dregið af því að þá var ösku dreift yfirhöfuð iðrandi kirkjugesta í katólskum sið, og jafnvel með einhverskonar vendi yfir allan söfnuðinn. Heitið er þekkt hérlendis frá miðri 14.öld en kynni að vera nokkru eldra. Af þessari athöfn hlýtur einnig að vera runninn öskupokasiðurinn sem ekki á sér hliðstæður erlendis. Hann virðist þekktur frá miðri 17.öld, og var algengast að konur reyndu að koma öskupokum á karla en karlar pokum með smásteinum á konurnar. Ösku og steinapokar voru alsiða hérlendis á 19.öld, og eru enn barnagaman á öskudag, enda varð öskudagur frídagur í skólum á öðrumáratug 20. aldar í stað bolludags áður. Það hefur einnig orðið til þess að siðir sem áður tengdust bolludegi, að"slá köttinn úr tunnunni" og"marséringar" barnaí grímubúningi, hafa nú fengið inni á öskudag. Sú veðurtrú er tengd deginum að hann eigi sér átján bræður með líkri veðráttu, en skiptar skoðanir eru um hvaða 18 dagar það séu. Svipu þjóðtrú er þekkt meðal annars frá Englandi... ..Strjálbýli og veðurfar hafa aðöllum líkindum komið í veg fyrir að útihátíðahöld næðu fótfestu á Íslandi á þessum árstíma en skemmtunin haldist innan veggja heimilanna, búanna. Eins og venjan á sprengidag gefur til kynna, saltkjöt og baunir í mál, hefur eitthvað verið gert til að breyta til í mataræði við upphaf föstu hér á landi. Þó ekki hafi tekist að rekja sögu þessara hefða langt aftur í tímann, má gera ráð fyrir að siðbreytingin hafi haft mikil áhrif á hvernig menn höguðu sér á lönguföstu og við upphaf hennar. Trúarleiðtogar mótmælenda lögðu minni áherslu áföstuna sjálfa og töldu hana koma illa við vinnusemi fólks sem var mikilvæg í augum þeirra. En jafn illa var þeim við kjötkveðjuhátíðarnar miklu, sem stóðu kannski í marga daga og gerðu fólk óvinnufært í fleiri daga á eftir... ..Í Evrópu tíðkuðust, og tíðkast enn þar og víða í heiminum, sérstakar kjötkveðjuhátíðir síðustu dagana fyrir lönguföstu, miklar útihátíðir og skemmtanir. Föstuinngangur fer saman við vorkomu í suðlægari löndum og þar hafa heiðin hátíðahöld örugglega haft áhrif sem síðan hafa borist til norðlægari landa. Dagarnir fyrir upphaf föstu voru líka hefðbundnir uppgjörsdagar skatta víða í Evrópu, sem gjarnan voru greiddir í búfénaði og matvælum. Hjá aðalsmönnum hefur því verið til ógrynni matar á þessum tíma sem helst þurfti að nýta sem fyrst vegna bágra aðstæðna til matvælageymslu. Heldra fólk gerði því vel við sig í mat á þessum tíma, og kirkjunnar menn og aðrar stéttir létu sitt ekki eftir liggja... ..Þótt hátíðleiki öskudagsins hafi minnkað og jafnvel horfið hér á landi við siðbreytinguna hélt fólk áfram að gera sér glaðan dag síðustu dagana fyrir lönguföstu og hér hafa þróast ýmsir siðir kringum bolludag, sprengidag og öskudag. Athyglisvert er að bolludagur (sem væntanlega fékk ekki nafnið fyrr en snemma á 20. öld) og öskudagur hafa að nokkru leyti skipt um hlutverk. Lengi vel var mánudagurinn í 7. vikufyrir páska hefðbundinn frídagur barna í skólum og þá tíðkaðist víða um landið að"marséra"í grímubúningum og að slá köttinn úr tunnunni, seint á 19. öld. Þeir siðir hafa væntanlega borist frá Danmörku eða Noregi. Árið 1917 hafði frídagurinn verið færður yfir á öskudaginn víðast hvar á landinu og siðirnir fluttust með. Að"marséra" og slá köttinn úr tunnunni datt þó víðast hvar upp fyrir á 20. öld, en hélst þó við á Akureyri og hefur þaðan breiðst út á ný... ...Vísindavefurinn er jafnframt forvitinn að vita um stöðu þessa siðar í dag og geta lesendur kannski aðstoðað við það!.....Spurt er sérstaklega um hvort einhverjar hömlur séu á því hvaða búningum krakkar klæðist á öskudag. Ekki hafa fundist neinar heimildir um það en vert er þó að benda á kirkju- og kristilegan uppruna öskudagsins og vona að krakkarnir ofbjóði ekki Guði og mönnum....Heimild: Saga daganna.ÁrniBjörnsson og Vísindavefurinn.Óþekkt Einar Thorbergsson Hekla ?Fleiri myndir í albúmi
Aukaleikararí atvinnuleit styrkja SL
Hópur atvinnuleitenda hefur undanfarin misseri gefið kost á sér sem aukaleikarar í ýmis verkefni. Á síðsta ári tók hópurinn þátt í gerð Áramótaskaups RÚV og fékk greitt fyrir þá vinnu. Ákveðið var að láta þann pening renna í styrk til tveggja félagasamtaka og voru greiddum það atkvæði innan hópsins. Slysavarnafélagið Landsbjörg og Hlutverkasetur urðu fyrir valinu og í dag fékk félagið veglegan styrk greiddan inn á reikning sinn. Er aukaleikurunum færðar góðar þakkir fyrir.
Smellið á fyrirsögn fréttar til að lesa meira.
Löndun á Vopnafirði.
Sælir lesendur góðir. Helstu fréttir af Faxanum eru þær að hann kom inn til Vopnafjarðar rétt fyrir klukkan fimm í morgun eftir 23. klukkustunda stím af miðunum í Eyjafjallasjónum. Það var þröngt á þingi í Vopnafjarðarhöfn en Ingunn AK 150 var undir í löndun og lýsisskipiðKey Fighter var að lesta 1800 tonn af lýsi. Það var lítið um bryggjupláss þannig að það var lagst utan á Ingunni en löndun upp úr lestum Faxans hófs svo á fjórða tímanum í dag.Kv.Faxagengið.KEY FIGHTER að lesta 1800 tonn af lýsi. Félagi Guðjón á leið í sýnatöku ásamtáhafnarmeðlim Key FighterBúið að tengja við lýsislögnina.Ingunn AK 150 undir í löndun og Faxinn utaná.Helgi, Haukur, Gunni afmælisbarn dagsins, Jens og GúndiHelgi, Haukur og JensIngunn að verða klár til að yfirgefa Vopnafjörð.Búið að sleppa og olíugjöfin í botn og Vopni kvaddur með söknuði.
Bolludagur
Góðan dag kæru lesendur nær og fjær.Við sluppum frá bryggju hálffimm í morgun og siglum nú rösklega suðurfyrir land að loðnuslóðir. Það er eins gott að slá vel í klárinn, því loðnan er á gríðarlegri hraðferð vestureftir og er komin að Eyjum. Sennilega verður hún komin á Faxaflóann um helgina og hrognafrysting hlýtur að fara að hefjast á allra næstu dögum, því hrognafyllingin hjá okkur í síðasta túr var 19,5% að sögn hins nákvæma mælingarmanns Hauks Laxdal hrossabónda í Tungu. Haukur þessi hefur þann starfa með höndum að vega og metaaflann eftir kúnstarinnar reglum og nánst gefa söluupplýsingar til frystihússins um gæði aflans. Hefur reynsla hans sem hrossaprangara nýst afar vel í þessu starfi.Það styttist í hrognaveisluna, spurning hvort markaðsaðstæður leyfa mikla hrognatöku.Í tilefni dagsins var bakað hér um borð um helgina og eru bollurnar í röðum inn í kæli og bíða eftir að verða kokgleyptar af svöngum Lundverjum.Hinsvegar var undirritaður ekki með neina myndavél og því grípum við til þess ráðs að birta mynd sem tekin var hér um borð fyrir ,,fáeinum"árum, þegar skipið var gert út frá Reykjavík og bar nafnið Narfi RE. Þessi mynd birtist á Togarasíðu Hafliða Óskarssonar vinar okkar. Hér er Þorsteinn Gíslason Bryti á Narfa RE að mæla þykktina á bolludeiginu.Við kveðjum í bili.GVIL
Frjálsar íþróttir.
Næstu helgi verður mikið um að vera hjá frjálsíþróttafólki á Austurlandi en þá fara fram Meistaramót UÍA fyrir 11 ára og eldri og Ávaxtamót UÍA fyrir 10 ára og yngri.Meistaramót UÍA fyrir 11 ára og eldri, verður haldið í Fjarðahöllinni á Reyðarfirði laugardaginn 28. janúar og hefst kl 12 (húsið opnar fyrir keppendur til upphitunar kl 11.30). Keppt verður í flokkum drengja og stúlkna 11 ára, 12-13 ára, 14-15 ára og 16 ára og eldri, í 60 m hlaupi, langstökki, hástökki, kúluvarpi og hringhlaupi. Verðlauna er fyrir þrjú efstu sæti í hverri grein. Þátttöikugjald er 1000 kr á keppenda óháð greinafjölda. Keppendur og áhorfendur er hvattir til að klæða sig vel því eins og flestir vita getur orðið æði kalt í höllinni. Mótið er öllum opið og krakkar sem ekki hafa æft frjálsar íþróttir en langar til að prófa eru hjartanlega velkomnir.Ávaxtamót UÍA fyrir 10 ára og yngri verður á sunnudaginn 29. janúar, í íþróttahúsinu á Fáskrúðsfirði og hefst kl 12. Þar verður keppt í flokkum stráka og stelpna 8 ára og yngri og 9-10 ára í spretthlaupi, langstökki án atrennu, boltakasti og þrautaboðhlaupi. Eins og jafnan á mótum hjá yngstu frjálsíþróttaköppunum ræður leikgleðin ríkjum, glaðbeittir ávextir kíkja í heimsókn og allir þátttakendur fá glaðning í viðurkenningarskyni fyrir þátttökuna. Þátttökugjald er 600 kr á keppenda óháð greinafjölda. Á þetta mót eru allir krakkar 10 ára og yngri hjartanlega velkomnir og skiptir þar engu hvort þeir hafa reynslu af frjálsíþróttaiðkun eða ekki.Skráningar á bæði mótin skulu berast í netfangið uia@uia.is, þátttakendur eru eindregið hvattir til að skrá sig fyrirfram þar sem það einfaldrar undirbúning mótanna verulega, en þó verður tekið við skráningum á staðnum. Nánari upplýsingar er hægt að fá hjá Lindu og þar geta Einherja krakkar einnig skráð sig til þátttöku í síma 892-2382.
Í landi
Góðan daginnHérna er það helst í fréttum að við komum til Vopnafjarðar seint í gærkvöldi með 600 tonn af lítillega makrílblandaðri síld sem við fengum í þremur stuttum holum. Á landleiðinni tókum við létta línubyssuæfingu og skutum úr nokkrum útrunnum hleðslum. Faxi erað landa núna og ætti hann að klára seinnipartinn í dag og förum við þá undir löndun.Spilaklúbburinn 8° austur tók nokkrar bertur á landleiðinniMaggi og Robbi að gera sig klára til að skjóta úr línubyssunniRobbi sýnir Jóa hvernig á að miðaJói lætur vaða
Síða 1 af 2
Fleiri fréttir
- 05. janúar 2012
Fyrsta loðnan komin í land á Vopnafirði. - 24. desember 2011
Varað við stormi. - 08. desember 2011
Kvenfélagið Lindin leitar eftir umsóknum. - 07. desember 2011
Grunnskólabörn fá endurskinsmerki og Neyðarkall. - 05. desember 2011
Vopnafjarðarhreppur búinn að selja allan hlut sinn í HB Granda. - 03. desember 2011
Fyrsta útkallið á nýja veginn um Vesturárdal. - 15. nóvember 2011
Hákarlaveiði á Vopnafirði - 02. nóvember 2011
Neyðarkall björgunarsveitana. - 26. október 2011
Hirðfíflin að gera góða hluti, safna peningum í sjálfboðavinnu og gefa til þurfandi. - 24. október 2011
Vopni í verkefni í dag. - 23. október 2011
„Ég táraðist af gleði“ Kærleiksmaraþoni lokið. - 23. október 2011
Sauðir koma sér í klípu, björgunarsveit kölluð út. - 23. október 2011
Kærleiksmaraþon á Vopnafirði - 19. október 2011
Vinavika stendur yfir á Vopnafirði - Vinaganga - tökum þátt - 09. október 2011
Fyrsta loðnan kom til Vopnafjarðar í morgun
RSS
22.02.2012 | Enski boltinn
Ferguson: Met Giggs verður ekki bætt
Sir Alex Ferguson knattspyrnustjóri Manchester United segir að met Ryan Giggs verði ekki bætt en velska goðsögnin leikur sinn 900....
Fleiri blogg
- 22.02.2012
Gallabuxur með innbyggðu lyklaborði væntanlegar - 22.02.2012
Myndir frá kaffihúsamessu á konudaginn - 22.02.2012
Öskudagur - 22.02.2012
Aukaleikararí atvinnuleit styrkja SL - 21.02.2012
Löndun á Vopnafirði.
Sir Alex Ferguson knattspyrnustjóri Manchester United segir að met Ryan Giggs verði ekki bætt en velska goðsögnin leikur sinn 900. leik fyrir United á morgun komi hann við sögu í leiknum gegn Ajax í Evrópudeildinni.
